Undirbúningur fyrir markaði haustins

Nú fer undirbúningur fyrir markaði haustins að fara að stað. Markmiðið er að taka þátt í Jólailmi í Hofi sem verður haldinn þann 22. nóvember. Og svo verður markaður einungis fyrir handverksfólk í Hörgársveit sem haldinn verður á Melum. Snældur taka auðvitað þátt í því. Svo er draumurinn að taka þátt í einum eða tveimur mörkuðum á ráðhústorginu í desember. Svo það er mikið og margt sem þarf að huga að. Eins og hvað eigi að hafa á mörkuðum. Í Hofi í fyrra vildi fólk geta keypt af mér stök dýr og ég ætla að reyna að verða við þeirri ósk, svo það verður spennandi að sjá hvort það hitti í mark :) Eins er ætlunin að vera með nóg af skarti, eyrnalokkum og þess háttar. Og svo jólatrésskraut. Best að vera ekki með of mikið eða láta metnaðinn hlaupa með sig í gönur. En hér eru myndir af jólatrésskrauti sem við erum byrjuð að vinna að og er tálgað úr greinum sem falla til við snyrtingu á garðinum á Brúnastöðum.

Kristín Birna Kristjánsdóttir

Ég er handverksmannskja í húð og hár, hef unnið í margskonar miðla alla mina tið. Ég er með bakgrunn í myndlist og hef alltaf teiknað og málað með öðru handverki eins og útskurði og vinnu með tré. Hingað til hafa allir mínu hlutir farið í gjafir en hef nú hug á að taka aðra stefnu í þeim málum.

Ég brenn fyrir því að nota íslenskan við sem ég tel vera vannýtta auðlynd. Ég er í samstarfi við Skógræktina í Eyjafirði og aðra skógræktarbændur um að nota við sem fellur til við grisjun hjá þeim. Það þýðir að varan er bæði vistvæn, umhverfisvæn og með eins lítið kolefnisspor og hugsast getur. Skógaróróarnir og hlutirnir mínir eru gerðir af hugsjón með skýra sjálfbærnissýn að leiðarljósi.

https://snaeldur.com